2017-02-01 15:02:26 CET

2017-02-01 15:02:26 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Farice ehf. - Ársreikningur

Farice - Aukið tap vegna styrkingar íslensku krónunnar


Tekjur Farice lækkuðu árið 2016 vegna lækkunar félagsins á verði til innlendra
fjarskiptafélaga. Þrátt fyrir tekjuminnkun var tap fyrrihluta árs 2016 nánast
hið sama og fyrrihluta árs 2015. Á síðari hluta ársins 2016 styrktist íslenska
krónan verulega sem endurspeglast í  hærri fjármagnskostnaði. 

Tap félagsins nam EUR 11 milljónum, EBITDA var EUR 7,2 milljónir, afskriftir
EUR 7,2 milljónir og fjármagnskostnaður EUR 11 milljónir. Eiginfjárhlutfall í
árslok 2016 var 34%. 

Þar sem félagið gerir upp í EUR hefur styrking íslensku krónunnar enn eitt árið
neikvæð áhrif á afkomu félagsins og aldrei meiri en á árinu 2016.  Langstærsta
skuld félagsins er skuldabréfaflokkur í ISK og styrking krónunnar hefur því
verulega neikvæð áhrif á reiknaðan fjármagnskostnað auk þess sem allur
innlendur kostnaður hækkar. Reiknað gengistap á höfuðstól skuldabréfaflokksins
var EUR 7 milljónir árið 2016  samanborið við EUR 2 milljóna gengishagnað í
janúar 2017. Ekki er möguleiki á uppgreiðslu skuldabréfaflokksins fyrr en í
apríl 2019. 

Nánari upplýsingar veitir Ómar Benediktsson í síma 585 9701.