2010-10-15 15:04:46 CEST

2010-10-15 15:05:44 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel hf. - Fyrirtækjafréttir

Marel - fjármögnun


Marel á í formlegum viðræðum við takmarkaðan fjölda alþjóðlegra banka um
fjármögnun fyrirtækisins. Fyrirtækið stefnir að nýrri, stöðugri og hagkvæmari
fjármögnun til lengri tíma litið. Slík fjármögnun auðveldar frekari samþættingu
á starfsemi fyrirtækisins. 

Fyrirhuguð fjármögnun er háð ákveðnum skilyrðum. Í tengslum við þetta ferli mun
fyrirtækið hefja viðræður við skuldabréfaeigendur (MARL 06 1 og MARL 09 1) um
hugsanlega uppgreiðslu bréfanna.