2014-02-27 17:00:38 CET

2014-02-27 17:01:41 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
RARIK ohf. - Ársreikningur

Ársreikningur RARIK fyrir árið 2013


Hagnaður RARIK á árinu 2013 var 1,9 milljarðar og jókst um 26% á milli ára, en
hagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) lækkaði um 10%. 


  Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á árinu 1.947 milljónir króna sem er
heldur meiri en gert var ráð fyrir í áætlunum. Hækkun frá árinu 2012 var rúm 26%
      en þá var hagnaður ársins 1.541 milljón króna. Rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 4.300 milljónir króna eða 36,5%
af veltu tímabilsins, samanborið við 38,1% á árinu 2012. Handbært fé frá rekstri
                            var 3.541 milljón króna.

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2013 var
2.684 milljónir króna sem er rúmlega 10% lækkun frá fyrra ári. Talsverð
styrking krónunnar gerði það að verkum að þrátt fyrir nokkra verðbólgu varð
niðurstaða fjármagnsliða einungis neikvæð um 867 milljónir króna, en á árinu
2012 var niðurstaðan neikvæð um 1.282 milljónir króna. 

Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 3% frá árinu 2012 og voru 11.793 milljónir króna
og rekstrargjöld hækkuðu á milli ára um rúm 8% og voru 9.108 milljónir króna.
Hækkun gjalda umfram verðlag má að verulegu leyti rekja til 18% hækkunar á
afskriftum. 

Áhrif Landsnets, sem er hlutdeildarfélag RARIK, á afkomu ársins voru jákvæð um
491 milljón króna á móti 180 milljónum á árinu 2012. 

Samkvæmt efnahagsreikningi námu heildareignir RARIK í árslok 46.787 milljónum
króna. Heildarskuldir námu 19.643 milljónum króna, eigið fé var 27.144
milljónir króna og er eiginfjárhlutfall því 58% samanborið við 57,2% í árslok
2012. 

Ársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

Horfur

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2014 eru góðar, en gert er ráð fyrir að hagnaður
ársins verði svipaður og á árinu 2013. Áætlanir ársins 2014 gera ráð fyrir að
forgangsorka og dreifing aukist lítillega, sem er í samræmi við þróun
undanfarinna ára. Gjaldskrá fyrir dreifingu var hækkuð í upphafi ársins 2014 um
4,5% í dreifbýli en gjaldskrá fyrir alla almenna notkun var óbreytt í þéttbýli.
Gera má ráð fyrir að á næstu árum þurfi enn að auka þann mun sem er á
gjaldskrám í dreifbýli og þéttbýli. Samkvæmt fjárlögum 2014 áforma stjórnvöld
að auka verulega fjármagn til verðjöfnunar milli dreifbýlis og þéttbýlis og þar
með jafna þennan mun að mestu á næstu þremur árum. 

Ný hitaveita var tekin í notkun á árinu á Skagaströnd. Gjaldskrár hitaveitna
RARIK breyttust ekki á síðasta ári, en gert er ráð fyrir að gjaldskrár muni
fylgja verðlagi á árinu 2014. Orkusalan gerir ráð fyrir að hækka verðskrá sína
í samræmi við hækkun Landsvirkjunar á heildsöluverði til Orkusölunnar. 

Vextir erlendra lána hafa verið hagstæðir undanfarin misseri og gert er ráð
fyrir að þeir haldist sambærilegir út árið 2014. 

Gert er ráð fyrir sambærilegum fjárfestingum í dreifikerfum og á fyrra ári, en
minni framkvæmdum í hitaveitum. Fjárfestingar Orkusölunnar verða svipaðar og á
síðasta ári. Á síðasta ári var gefinn út skuldabréfaflokkur að upphæð 1.000
milljónir á hagkvæmum kjörum, en á næstu þremur árum er þörf á umtalsverðri
endurfjármögnun. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að hve miklu leyti það
verður gert á árinu 2014, en það ræðst af aðstæðum á fjármálamarkaði. 



Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna.

         Helstu stærðir úr                                                      
          rekstri:                                                              
                              jan-des  jan-des  jan-des  jan-de  jan-de  jan-des
                                                            s       s           
                               2013     2012     2011     2010    2009    2008  
Rekstartekjur                  11.793   11.412   10.768   9.694   8.703    7.830
Rekstrargjöld                   9.108    8.428    8.547   7.907   6.973    6.851
Rekstrarhagnaður                2.684    2.984    2.221   1.787   1.731      979
Fjármunatekjur og                -867   -1.282   -1.233      56  -1.804   -5.645
 (fjármagnsgjöld)                                                               
Áhrif hlutdeildarfélags           491      180      189     802     331   -2.877
Hagnaður/tap  fyrir skatta      2.309    1.882    1.177   2.646     257   -7.543
Tekjuskattur                     -362     -341     -164    -127     440      310
Hagnaður (Tap)                  1.947    1.541    1.014   2.518     697   -7.232
Eignir samtals                 46.787   44.569   37.262  37.032  35.663   31.923
Eigið                          27.144   25.507   19.327  18.314  15.982   13.942
 fé                                                                             
Skuldir                        19.643   19.062   17.935  18.718  19.682   17.982
Handbært fé frá rekstri         3.541    3.257    2.779   2.067   1.847    1.150
Greidd vaxtagjöld                 657      630      623     842     749      901
EBITDA                          4.300    4.351    3.520   3.054   2.843    1.884
Vaxtaþekja                       6,54     6,91     5,65    3,63    3,80     2,09
Eiginfjárhlutfall               58,0%    57,2%    51,9%   49,5%   44,8%    43,7%





Ársreikningur RARIK 2013 var samþykktur á fundi stjórnar þann 27. febrúar 2014
og heimilaði stjórn birtingu hans í Kauphöll. 

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma
528-9000.