2011-05-12 11:35:35 CEST

2011-05-12 11:36:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sveitarfélagið Árborg - Ársreikningur

Ársreikningur sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2010 - Viðsnúningur hjá Árborg


Afkoma sveitarfélagsins Árborgar árið 2010 batnar verulega milli ára og er
hagnaður af samstæðu upp á 172 milljónir í stað 449 milljóna króna taps árið
2009.  Er í reynd um bætta afkomu að ræða upp á 621 milljón króna milli áranna
2009 og 2010. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir tapi á samstæðu upp á 429
milljónir og er því niðurstaðan 602 milljónum betri  en í þeirri áætlun. EBITDA
hækkar úr 4% í 10% í A-hluta og úr 16% í 19% á samstæðu. Hlutfall
launakostnaðar fer úr 52% af heildartekjum í 48% milli ára. Enn er þó halli á
bæjarsjóði en hann lækkar úr 606 milljónum króna í 60 milljónir á síðasta ári.
Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs er þó jákvæð um 368 milljónir króna sem er 133%
aukning EBITDA hagnaðar. 



Heildarniðurstaðan upp á 172 milljónir í hagnað er mikil breyting til batnaðar.
Að krónutölu er hér um mestan afgang að ræða af reglulegri starfssemi
sveitarfélagsins frá upphafi. Meðalafkoma sveitarfélagsins síðustu níu ára af
reglulegri starfssemi hefur verið tap upp á 130 milljónir á ári í samstæðu. 



Skuldir eru enn verulegar og þarf enn að bæta rekstrarafkomu sveitarfélagsins
til að unnt sé að greiða niður skuldir í viðunandi horf. Hlutfall skulda af
samstæðu lækkar um 1,8 prósentustig en stefnt er að því að lækka skuldahlutfall
verulega á næstu misserum. Áfram verður því unnið að hagræðingu eins og kostur
er á. 





Meðfylgjandi er ársreikningur Sveitarfélagsins Árborgar sem tekinn var fyrir
til fyrri umræðu á bæjarstjórarfundi miðvikudagskvöldið 11.maí 2011.