2013-12-12 12:45:00 CET

2013-12-12 12:45:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0317 OG RIKV 14 0616


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0317 og RIKV 14 0616 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 14 0317:

Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.375 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 1.175 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,051 (flatir
vextir 3,79%). 

RIKV 14 0616:

Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.125 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 1.025 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,071 (flatir
vextir 3,89%).