|
|||
![]() |
|||
2015-08-19 18:31:00 CEST 2015-08-19 18:31:35 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Vodafone og Nova stefna að stofnun félags um samrekstur farsímakerfa félaganna fyrir 1. október næstkomandiMun samreksturinn felast í gagnkvæmum aðgangi að farsímadreifikerfum félaganna og þannig leiða til hagkvæmni í rekstri og fjárfestingum. Vodafone ("Fjarskipti hf.") telur að hægt sé að fækka sameiginlegum hýsingarstöðum farsímasenda um u.þ.b. 220, eða úr 770 í 550, sem mun leiða samanlagt til um 200 m.kr. rekstrarsparnaðar sem ætti að skila sér að fullu inn í rekstur félaganna á um þremur árum. Vodafone mun einnig ná fram hagkvæmni í fjárfestingum með aðgangi að farsímadreifikerfum Nova. Vodafone metur að möguleg hagkvæmni í fjárfestingum frá árinu 2016 geti numið um 0,3% af veltu félagsins. Stefnt er að endanlegum frágangi allra samninga og samþykkta samrekstrarfélagsins fyrir 1. október næstkomandi. [HUG#1946531] |
|||
|