2016-08-22 11:50:27 CEST

2016-08-22 11:50:27 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Nýtt lánshæfismat Kópavogsbæjar


Lánshæfismat Kópavogsbæjar hækkar

Lánshæfismat Kópavogsbæjar hækkar um eitt þrep í mati Reitunar á lánshæfi
bæjarins. Matið hækkar í i.A1 úr i.A2. Þessi hækkun er tilkomin vegna
áframhaldandi lækkunar skuldahlutalls og styrkingu efnahags sveitarfélagsins,
góðs rekstrar, góðrar eftirspurnar eftir lóðum og ágætum horfum í
efnahagsmálum. 

„Tíðindin eru ánægjuleg en koma ekki á óvart. Þessi niðurstaða er í samræmi við
þá stefnu sem við höfum sett í rekstri sveitarfélagsins,“ segir Ármann Kr.
Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs. 

Bjart er framundan í fjármálum sveitarfélagsins og innviðir traustir en
mikilvægt er að haldið verið vel utan um kostnað og fjárfestingar segir í
greiningu Reitunar. Samkvæmt áætlun Kópavogsbæjar er gert ráð fyrir að
skuldahlutfall fari undir 150% 2018 en í skýrslunni segir að flest bendi til að
það gerist á næsta ári, 2017, og mun sú lækkun hækka lánshæfismat frekar að
óbreyttu.