2010-12-14 17:34:42 CET

2010-12-14 17:35:43 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Skuldir Kópavogs lækka


Fjárhagsáætlun 2011

Tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2011 var lögð fram til fyrri
umræðu í bæjarstjórn í dag. Tíu af ellefu bæjarfulltrúum standa að henni og var
hún unnin í nánu samráði við nefndir og ráð bæjarins. Við vinnslu hennar var
auk þess kallað eftir sjónarmiðum bæjarstarfsmanna og bæjarbúa. Með því er lögð
áhersla á að allir Kópavogsbúar geti tekið þátt í stefnumótun bæjarins. 

Fjárhagsáætlun ársins 2011 ber þess merki að árferðið er erfitt. Skuldir
bæjarins eru miklar og brýnt að hagræða og forgangsraða í rekstri og greiða
niður skuldir. 

Höfuðáhersla er lögð á að verja grunnþjónustuna; leikskólana, skólana og
félagsþjónustuna. Þetta þýðir að tímabundið mun þrengja að rekstri annarra
málaflokka og ekki verður hjá því komist að hækka gjaldskrár. 

Verulega er dregið saman í yfirstjórn bæjarins m.a. með skipulagsbreytingum í
stjórnsýslu, sameiningu nefnda og fækkun funda. 

Miðað er við að útsvar fyrir árið 2011 verði óbreytt og að fasteignaskattur
breytist til samræmis við verðlagsþróun. Holræsagjöld, vatnsgjöld og
sorphirðugjöld hækka til að mæta auknum kostnaði. 

Punktar úr fjárhagsáætluninni:

  --  Stefnt að því að greiða inn á skuldir bæjarsjóðs um milljarð á ári næstu
      árin.
  --  Áætlað að rekstrarafgangur samstæðureiknings verði um 103 milljónir.
  --  Veltufjárhlutfallið styrkist og verður 0,88.
  --  Veltufé frá rekstri verður rúmir 2 milljarðar.
  --  Áætlað að hagræða í rekstri mötuneyta í grunnskólum bæjarins.
  --  Stefnt að því að hagræða í skólaakstri og er útboð fyrirhugað í vor.
  --  Leikskólagjöld hækka en verða áfram með þeim lægstu á höfuðborgarsvæðinu.
  --  Ýmsir kostnaðarliðir hækka til að standa undir auknum rekstrarkostnaði.
  --  Rekstrarsamningar við íþróttafélögin verða teknir til endurskoðunar.

         Nánari upplýsingar:
         Arna Schram, forstöðumaður almannatengsla, sími: 6960663