2014-11-10 19:31:16 CET

2014-11-10 19:32:16 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Hlutafjáraukning til forgangsréttarhafa í Eik fasteignafélagi hf.


Stjórn Eikar fasteignafélags hf. ákvað á fundi sínum í dag, þann 10. nóvember
2014, að bjóða til sölu nýtt hlutafé til tiltekinna forgangsréttarhafa í
samræmi við heimild stjórnar í a) lið 4. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins sem
samþykkt var á hluthafafundi 17. janúar 2014. Nýti forgangsréttarhafar sér rétt
sinn til kaupa á hinu nýja hlutafé í félaginu mun eigið fé félagsins hækka um
allt að 3 milljarða króna. 



Með vísan til samandregins samstæðuárshlutareiknings 30. júní 2014, sem birtur
var 28. ágúst 2014, lýsir stjórn félagsins því yfir að engar verulegar
breytingar hafa orðið á efnahag þess frá síðustu skýrslu stjórnar, utan að
félagið greiddi inn á lán kr. 650.000.000 af handbæru fé félagsins. 



Frekari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson,

forstjóri Eikar fasteignafélags hf.

gardar@eik.is, s. 5902200 / 861-3027



Kolbeinn Friðriksson

framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eikar fasteignafélags hf.

kolbeinn@eik.is, s. 5902209 / 7812111