2016-08-18 19:48:35 CEST

2016-08-18 19:48:35 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Reitir II ehf. - Ársreikningur

Afkoma Reita II á fyrri árshelmingi 2016


Hagnaður Reita II ehf. á fyrri helmingi ársins 2016 nam 643 milljónum króna
samanborið við 776 milljóna króna hagnað á sama tímabili árið áður.
Rekstrarhagnaður félagsins á tímabilinu nam 582 milljónum króna samanborið við
628 milljónir króna árið áður. Matsbreyting fjárfestingareigna Reita II á
fyrstu sex mánuðum ársins var 182 milljónir en hún var 375 milljónir króna á
sama tíma árið áður. 


Reitir II ehf. er eitt af dótturfélögum í 100% eigu Reita fasteignafélags hf.
Upplýsingar um afkomu móðurfélagsins, Reita fasteignafélags hf, má finna á
www.reitir.is. 

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson fjármálastjóri í síma 575 9000 eða
669 4416 (einar@reitir.is).