|
|||
2012-11-27 11:57:30 CET 2012-11-27 11:58:31 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirTilkynning frá Íbúðalánasjóði vegna fréttar á Bloomberg-fréttaveitunni í morgunHaft er eftir formanni velferðarnefndar Alþingis að Íbúðalánasjóður þurfi að endursemja um skilmála skulda sinna og þar með að fá eigendur skuldabréfanna til að samþykkja skilmálabreytingu sem heimilaði sjóðnum uppgreiðslu skulda sinna. Tekið skal fram að ekki er unnið að breytingu á skilmálum skuldabréfa Íbúðalánasjóðs og engar ákvarðanir um slíkt hafa verið teknar, enda er slík skilmálabreyting óframkvæmanleg nema í fullu samstarfi við eigendur fjármögnunarbréfa sjóðsins. |
|||
|