2009-03-20 18:26:53 CET

2009-03-20 18:27:58 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Atorka Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Atorka Group hf. - Staða á kyrrstöðusamningi


Þann 10. febrúar tilkynnti Atorka Group hf. (Atorka) um samning um kyrrstöðu
til 20. mars 2009 í skuldabréfaflokkum með auðkennið ATOR 07 2 og ATOR 06 1 við
viðskiptabanka félagsins. 

Á því tímabili féllu vaxtagjalddagar í flokkum ATOR 05 1, ATOR 07 4 og JRDB 04
1, sem Atorka greiddi til allra aðila sem standa fyrir utan
kyrrstöðusamninginn. 

Atorka vinnur nú að frekari framlengingu á kyrrstöðusamningnum í góðri samvinnu
við aðila samkomulagsins og mun félagið tilkynna um niðurstöðu um
leið og hún liggur fyrir.