2018-01-22 09:30:00 CET

2018-01-22 09:30:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup VÍS á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 2 voru engin viðskipti með eigin bréf í tengslum við endurkaupaáætlun félagsins.

Endurkaupaáætluninni var hrint í framkvæmd 18. september 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 15. september 2017.

VÍS hefur nú keypt samtals 18.703.224 hluti í félaginu sem samsvarar 34,01% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 215.219.639. VÍS á nú samtals 0,84% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.223.497.541.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Heimildin gildir fram að aðalfundi félagsins 2018. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.