|
|||
![]() |
|||
2025-01-22 10:00:00 CET 2025-01-22 10:00:00 CET REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarReykjavíkurborg - skuldabréfaútboð RVK 44 1 í dagÍ dag, miðvikudaginn 22. janúar, efnir Reykjavíkurborg til útboðs á skuldabréfaflokknum RVK 44 1. Heimild til lántöku á árinu 2025 er 16.500 m.kr. og þetta er fyrsta útboð ársins. RVK 44 1 ber fasta 3,75% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 21. maí 2044. Heildarstærð RVK 44 1 fyrir þetta útboð nemur alls 6.350 m.kr. að nafnvirði. Gert er ráð fyrir að viðskiptavakt með flokkinn hefjist í kjölfar þessa útboðs. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð. Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 28. janúar nk. Reykjavíkurborg hefur boðið viðskiptavökum, sem eru Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, að hafa umsjón með útboðinu og taka á móti tilboðum í útboðinu. Tilboðum skal skilað inn á netfangið fjarstyring@reykjavik.is fyrir kl. 16:00 í dag. Nánari upplýsingar veitir:
![]() |
|||
|