2016-01-14 17:45:36 CET

2016-01-14 17:45:36 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Reginn hf.: Breytingar á skipulagi


Tekin hefur verið ákvörðun um að breyta stjórnskipulagi hjá Regin hf. og felst
hún í eftirfarandi: 

Ákveðið hefur verið að ganga til samninga við ISS Ísland ehf. um yfirtöku á
meginhluta þeirra rekstrarþátta sem Fasteignaumsýsla Regins hefur sinnt. Um er
að ræða stoð- og þjónustustarfsemi sem tilheyrir Smáralind og Egilshöll s.s.
ræstingar og þrif, sorp og förgun, þjónustuborð, öryggismál, hús- og baðvarsla
ásamt rekstri og hluta viðhalds fasteigna auk orkustýringar. Ekki er gert ráð
fyrir að ráðstöfun þessi hafi umtalsverð áhrif á afkomu Regins hf. Hinsvegar er
gert ráð fyrir bættri kostnaðarstýringu og stöðugra  þjónustustigi.
Starfsmönnum samstæðunnar mun fækka verulega þar sem gert er ráð fyrir að
núverandi starfsmenn sem sinna þessum verkefnum flytjist yfir til ISS Íslands
ehf. Þessi breyting mun einnig skapa aukið svigrúm fyrir stjórnendur Regins hf.
og dótturfélaga til að einbeita sér að kjarnastarfsemi félagsins sem og
starfsemi innan afkomueininga. 

Reginn hf. tilkynnir samhliða nýtt stjórnskipulag félagsins sem og
mannabreytingar í stjórnendateymi félagsins sem taka gildi 1. febrúar nk. 

  -- Nýr framkvæmdastjóri Regins Atvinnuhúsnæði ehf.:
 Páll V. Bjarnason (34), byggingaverkfræðingur, MSc. mun taka við þeirri
     stöðu. Jafnframt mun Páll stýra og bera ábyrgð á þeim verkefnum sem
     flytjast frá Fasteignaumsýslu Regins, en Páll hefur verið sviðsstjóri þess
     sviðs í tæp tvö ár.
  -- Útleigustarfsemi 
félagsins verður færð undir sérstakt svið þ.e. „Útleigusvið“. Hlutverk
     sviðsins verður að hafa nákvæma yfirsýn yfir stöðu útleigu hverju sinni.
     Gera og viðhalda útleiguáætlun fyrir félagið, framkvæma nauðsynlegar
     markaðsgreiningar og kynningar auk þess að annast útleigu á lausum rýmum.
     Sviðsstjóri verður Rúnar Hermannsson Bridde (36), viðskiptafræðingur en
     Rúnar hefur stýrt leiguteymi félagsins í eitt og hálft ár.
  -- Stjórnunareiningu  „Upplýsingar og greiningar“ 
verður komið á fót og hefur sú eining það hlutverk að efla og bæta vinnslu,
     greiningu og framsetningu upplýsinga sem og miðlun upplýsinga innan
     félagsins. Ennfremur að hafa yfirumsjón með upplýsinga- og fjarskiptakerfum
     félagsins þ.e. vef, tölvukerfi, miðlun í gegnum samfélagsmiðla o.s.frv.
 Björn Eyþór Benediktsson (30), BS í byggingaverkfræði og
     fjármálahagfræðingur M.Sc mun stýra þeirri einingu en Eyþór hefur starfað
     hjá félaginu í eitt og hálft ár við greiningar, upplýsingavinnslu og
     þátttöku í viðskiptaþróun.
  -- Yfirmaður reikningshalds 
verður Guðlaug Hauksdóttir  (43), viðskiptafræðingur. Guðlaug hefur starfað
     hjá Regin hf. í rúmlega fimm ár sem sérfræðingur á fjármálasviði félagsins.



Nýtt skipurit félagsins er að finna á vef þess www.reginn.is og í meðfylgjandi
tilkynningu. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262