2009-10-20 17:18:46 CEST

2009-10-20 17:19:46 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Opin Kerfi Group hf. - Fyrirtækjafréttir

- Varðar OPKF 01 1


OKG ehf. (áður Opin Kerfi Group hf.) er útgefandi skuldabréfa með heitið OPKF
01 1, á gjalddaga í dag, 20. október 2009, sem jafnframt er lokagjalddagi
skuldabréfanna. 

OKG ehf. mun ekki greiða umsamda afborgun eða vexti á gjalddaga þar sem
viðræður standa enn yfir við kröfuhafa félagsins um fjárhagslega
endurskipulagningu félagsins með það að markmiði að tryggja fullar efndir. Það
skal tekið fram að afborgun og vaxtagreiðslur sem féllu í gjalddaga þann 20.
apríl síðastliðinn eru einnig ógreiddar. 

Félagið mun senda frá sér upplýsingar um framgang viðræðnanna í byrjun
nóvembermánaðar. 

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Þór Jónsson, framkvæmdastjóri OKG ehf, í síma
861 7221.