2015-04-01 17:09:51 CEST

2015-04-01 17:10:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Skipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Fundur Skipta hf. með Arion banka hf., sem lánveitanda og veðvörsluaðila, og skuldabréfaeigendum í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01


Fundur Skipta hf. með Arion banka hf., sem lánveitanda og veðvörsluaðila, og
skuldabréfaeigendum í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01 verður haldinn
föstudaginn 10. apríl 2015 kl. 16:00 á Hilton Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2. 



Dagskrá

1.    Ákvörðun um að breyta tryggingarbréfi, upphaflega dags. 22. desember
2005, ásamt síðari breytingum, síðast þann 28. júní 2013. 

2.    Ákvörðun um að breyta veðsamningi um veð í samningsbundnum réttindum,
upphaflega dags. 22. desember 2005, ásamt síðari breytingum, síðast þann 28.
júní 2013. 

3.    Ákvörðun um að breyta veðsamningi um veð í verðbréfum, upphaflega dags.
22. desember 2005, ásamt síðari breytingum, síðast þann 28. júní 2013. 

4.    Samruni Skipta hf. og Símans hf., þar sem Skipti hf. er yfirtökufélag.

Til að taka þátt í fundinum þurfa eigendur skuldabréfa í skuldabréfaflokknum
SKIPTI 13 01 að framvísa staðfestingu á eign sinni á VS reikningi hjá
reikningsstofnun dagsetta eftir 1. apríl 2015. Atkvæðisréttur lánveitenda
miðast við stöðu krafna þeirra þann 1. apríl 2015. 



Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á fundardegi.



Tillögur Skipta hf. fyrir fundinn geta Arion banki hf., sem lánveitandi, og
eigendur skuldabréfa í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01, gegn framvísun
staðfestingar á eign sinni á VS reikningi hjá reikningsstofnun  dagsetta eftir
1. apríl 2015, nálgast á skrifstofu Skipta hf. Umboðseyðublað er að finna í
viðhengi. 



Frekari upplýsingar veitir Pétur Þ. Óskarsson, yfirmaður samskipta Símans hf. í
farsíma 863-6075.