|
|||
2024-03-27 17:05:35 CET 2024-03-27 17:05:35 CET REGULATED INFORMATION Síminn hf. - FlöggunSíminn hf. - Flöggun eigin hlutirÍ dag, 27. mars 2024, var hlutafé Símans hf. lækkað um 125.000.000 hluti í samræmi við ákvörðun aðalfundar frá 14. mars sl. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Síminn hefur sömuleiðis í dag afhent 101.153.146 hluti vegna kaupa félagsins á öllu hlutafé í BBI ehf., Dengsa ehf. og Billboard ehf. Með þessum breytingum fór hlutfall eigin bréfa Símans hf. undir 5% af heildarfjölda hluta. Síminn hf. átti 277.499.000 eigin hluti fyrir þessar aðgerðir en á að þeim loknum 51.345.854 hluti eða sem nemur 1,938% af útgefnum hlutum í félaginu. Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. (Flöggunarskylda vegna eigin hluta) laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu. Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans (fjarfestatengsl@siminn.is). |
|||
|