|
|||
![]() |
|||
2015-05-08 17:15:23 CEST 2015-05-08 17:16:23 CEST REGULATED INFORMATION Reginn hf. - FyrirtækjafréttirSamkeppniseftirlitið samþykkir kaup Regins hf. á fasteignasafni Fastengis ehf.Þann 17. febrúar 2015 var undirritaður kaupsamningur milli Regins hf. og Fastengis ehf. um kaup á öllu hlutafé í Fjárvara ehf., Bréfabæ ehf., og Sævarhöfða 2 ehf. Kaupsamningurinn innihélt m.a. fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Samkeppniseftirlitið hefur nú birt niðurstöðu sína, en samkvæmt henni telur Samkeppniseftirlitið að kaup Regins hf. á ofangreindum félögum feli í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna samrunans. Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. S: 512 8900 / 899 6262 |
|||
|