2009-04-06 10:54:36 CEST

2011-09-16 12:28:47 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Minutes of extraordinary general meeting (is)

- Niðurstöður aðalfundar HB Granda haldinn 3. apríl sl.


Aðalfundur samþykkti samhljóða bæði ársreikning félagsins og skýrslu stjórnar.

Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur:

Arðgreiðsla

“Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 3. apríl 2009 samþykkir að greiddur verði 8%
arður (0,08 kr á hlut) vegna ársins 2008, alls að fjárhæð 135.762.698 kr.
Arðurinn verði greiddur 27. apríl 2009. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður
fylgir bréfunum er 3. apríl 2009 og arðleysisdagur því 6. apríl 2009.
Arðsréttindadagur er 8. apríl 2009. (Arður greiðist þeim sem skráðir eru í
hlutaskrá að loknu uppgjöri Verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 9:00 þann 8.
apríl 2009)” 

Þóknun til stjórnarmanna

“Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár kr. ¬¬¬¬800.000-. Formaður taki
þrefaldan hlut.” 

Kosning endurskoðanda

“Endurskoðunarfélag: KPMG hf.”

Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum
“Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í
félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup
fari ekki yfir 10% af heildar¬hlutafé félagsins á hverjum tíma.  Kaupverð hluta
skal vera hæst 15% yfir síðasta þekktu söluverði á First North markaðinum áður
en kaup eru gerð.” 

Kjör stjórnar
Á fundinum voru eftirtaldir aðilar kjörnir í stjórn félagsins:
Aðalmenn: Árni Vilhjálmsson, Halldór Teitsson, Hjörleifur Jakobsson, KristjánLoftsson, og Ólafur Ólafsson. Varamaður: Guðmundur A. Birgisson.