2008-10-29 13:01:38 CET

2008-10-29 13:02:38 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
VBS Fjárfestingarbanki hf. - Hluthafafundir

- Hluthafafundur VBS fjárfestingarbanka hf. þann 4. nóvember 2008


VBS fjáfestingarbanki hf. boðar til hluthafafundar í húsakynnum bankans að
Borgartúni 26 (6.hæð) þriðjudaginn 4. nóvember, kl: 17:00 

Dagskrá:

  1.  Aðstæður á fjármálamarkaði, stefna og áherslur VBS. 

  2.  Breyting á samþykktum:

    -   Að heimilt verði að gefa út skuldabréf með breytirétti í hlutafé allt að
        fjárhæð krónur 3.000.000.000.- 
    -   Að stjórn hafi umboð til að ákvarða verð og kjör skuldabréfa ásamt
        gildistíma breytiréttar og gengi. 

  3.  Að gildandi heimild til útgáfu nýrra hluta að fjárhæð allt að krónur
      150.000.000.- falli niður. 

  4.  Að heimild verði veitt til útgáfu nýrra hluta allt að krónur 300.000.000,-
      án forkaupsréttar. 

    -   Að stjórn hafi umboð til að ákvarða verð, kjör bréfanna, gengi og hvort
        greitt er með reiðufé eða í öðru formi. 

5.    Kosning stjórnar og varastjórnar.

6.    Önnur mál, löglega upp borin.

Framboðsfrestur til stjórnar og varastjórnar rennur út miðvikudaginn 29.
október 2008 kl. 16:00. Framboðum skal skilað á skrifstofu félagsins,
Borgartúni 26 (6.hæð), 105 Reykjavík. 

Athygli er vakin á því að samkvæmt lögum og reglum um fjármálafyrirtæki  skal í
tilkynningu um framboð koma fram: nafn frambjóðanda, kennitala, heimilisfang,
upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og
hlutafjáreign í félaginu.  Enn fremur skal upplýsa um hagsmunatengsl við helstu
viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en
10% hlut í félaginu. 

Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhentir við innganginn frá klukkan 16:30 á
fundardag. 

Stjórn VBS fjárfestingarbanka