2013-03-08 14:57:18 CET

2013-03-08 14:58:20 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir II - Ársreikningur

Afkoma Reita II á árinu 2012


Tap Reita II ehf. á árinu 2012 nam 1.929 milljónum króna samanborið við 1.321
milljón króna tap á árinu áður. Rekstrarhagnaður félagsins á árinu var 1.158
milljónir króna samanborið við 1.061 milljón króna á árinu 2011. 

Neikvæð afkoma orsakast að miklu leyti af matsbreytingu fjárferstingareigna en
mat á fjárfestingareignum félagsins lækkaði um 1.138 milljónir í árslok 2012.
Móðurfélag Reita II ehf., Reitir fasteignafélag hf., hyggur á skráningu í
Kauphöll á árinu 2013 í kjölfar endurfjármögnunar á hluta skulda samstæðunnar. 

Lykiltölur:

  -- Heildareignir námu 19.660 milljónum króna þann 31. desember 2012 sem er
     lækkun um 1.189 milljónir króna frá árslokum 2011.
  -- Eigið fé félagsins er neikvætt um 27 milljónir króna í lok ársins.
  -- Rekstrartekjur ársins námu námu 1.671 milljónum króna samanborið við 1.617
     milljónir króna árið áður.

Reitir II á og rekur 18 fasteignir á Íslandi og er félagið eitt af 7
dótturfélögum í 100% eigu Reita fasteignafélags hf. í árslok 2012. Upplýsingar
um afkomu sam­stæðunnar, Reita fasteignafélags, má finna á www.reitir.is. 

Aðalfundur félagsins verður haldinn þann 5. apríl 2013.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita, í síma 575
9000 og netfanginu einar@reitir.is.