|
|||
![]() |
|||
2015-05-26 17:01:01 CEST 2015-05-26 17:01:22 CEST REGLERAD INFORMATION Hafnarfjarðarkaupstaður - HluthafafundirHFJ 14 1 - Eftirlitsaðili skuldabréfaflokks HFJ 14 1 boðar til fundar skuldabréfaeigendaPricewaterhouseCoopers ehf. (PwC), sem starfar sem eftirlitsaðili skuldabréfaflokks HFJ 14 1, boðar hér með til fundar skuldabréfaeiganda. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 5. júní 2015 kl. 15.00 í Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík. Dagskrá fundar 1. Eftirlitsaðili tilkynnir skuldabréfaeigendum um brot útgefanda á fjárhagslegum skilyrðum skuldabréfaflokksins samanber tilkynning útgefanda til kauphallar þann 26.5.2015. Til að taka þátt í fundinum þurfa eigendur skuldabréfa í skuldabréfaflokknum HFJ 14 1 að framvísa staðfestingu á eign sinni á VS reikningi hjá reikningsstofnun. Fundargögn verða afhent á fundinum. Skuldabréfaeigendur eru beðnir um að staðfesta komu á boðaðan fund eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 3. júní. Frekari upplýsingar veita: Helga Kristín Jóhannsdóttir, ráðgjafi í fyrirtækjaráðgjöf PwC, sími 840 5231 Magnús Eyjólfsson, ráðgjafi í fyrirtækjaráðgjöf PwC, sími 840 4319 [HUG#1923966] |
|||
|