2012-05-18 18:19:39 CEST

2012-05-18 18:20:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Aðalmiðlarasamningar og viðskiptavakt vegna skuldabréfaflokka RVK 09 1 og RVK 19 1


Reykjavíkurborg semur við Íslandsbanka, MP banka og Straum fjárfestingarbanka
um viðskiptavakt með skuldabréf 

Í dag 18. maí 2012 samþykkti borgarráð samninga milli Reykjavíkurborgar og
aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa Reykjavíkurborgar og
viðskiptavakt á eftirmarkaði í flokknum RVK 09 1 og RVK 19 1, sem undirritaðir
voru þann 15. maí 2012 með fyrirvara um samþykki borgarráðs. Markmiðið með
samningunum er að styrkja aðgang Reykjavíkurborgar að lánsfé og efla verðmyndun
á eftirmarkaði. 

Frá og með 23. maí 2012 hafa þrjár fjármálastofnanir heimild til að kalla sig:
„Aðalmiðlara með skuldabréf Reykjavíkurborgar“. Þær eru: Íslandsbanki hf., MP
banki hf. og Straumur fjárfestingarbanki hf. 

Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Reykjavíkurborg
veitir. 

Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 09 1 og setur fram kaup-
og sölutilboð að lágmarki 50 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir
opnun markaðar. 

Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 19 1 og setur fram kaup-
og sölutilboð að lágmarki 20 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir
opnun markaðar. Tilboðsskylda aðalmiðlara í flokki RVK 19 1 hefst þann dag sem
flokkurinn er skráður í NASDAQ OMX á Íslandi. 

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal aldrei vera meiri en 1%.
Viðskiptavaki skal endurnýja tilboð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið eða
þau felld niður. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals
150 m.kr. að nafnvirði með RVK 09 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun
kaup- og sölutilboða. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir
samtals 60 m.kr. að nafnvirði með RVK 19 1 er honum heimilt að víkja út frá
hámarksmun kaup- og sölutilboða. 

Viðskiptavakt Íslandsbanka hf., MP banka hf. og Straums fjárfestingarbanka hf.
gildir frá og með 23. maí 2012. Við undirritun samninganna féllu úr gildi eldri
samningar við Íslandsbanka hf. og MP banka hf. 



Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321