2012-11-01 16:53:04 CET

2012-11-01 16:54:05 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarðabyggð - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013 og þriggja ára áætlun 2014-2016


Fimmtudaginn 1. nóvember 2012 var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn
Fjarðabyggðar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana fyrir árið 2013,
þriggja ára áætlun fyrir árin 2014-2016 og langtímaáætlun sem nær til áranna
2017-2023. Seinni umræða bæjarstjórnar um fjárhagsáætlanirnar verður þann 15.
nóvember n.k. 

Í A hluta er Aðalsjóður auk eignasjóða. Í B hluta eru veitustofnanir,
hafnarsjóður, félagslegar íbúðir og sorpstöð. Rekstrarafgangur samstæðu A og B
hluta á árinu 2013 fyrir fjármagnsliði er áætlaður 911 m.kr. Þar af er
rekstrarafgangur A hluta 403 m.kr. Að teknu tilliti til fjármagnsliða er
rekstrarafgangur hjá samstæðu A og B hluta 348 m.kr. og þar af rekstrarafgangur
í A hluta 15 m.kr. Þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir rekstrarafgangi hjá A
hluta öll árin. Þá er gert ráð fyrir að rekstrarafgangur aukist frá ári til árs
bæði hjá A hluta og samstæðu A og B hluta. 

Áætlað er að eigið fé samstæðu nemi 669 m.kr. í árslok 2013 og
eiginfjárhlutfall verði 6,1%. Í árslok 2016 er áætlað að eigið fé samstæðu nemi
1.868 m.kr. og eiginfjárhlutfall verði 17,2%. Í A hluta er eigið fé neikvætt um
1.006 m.kr. í árslok 2013. Jákvæð afkoma í A hluta í þriggja ára áætlun,
styrkir eigið fé sem er í árslok 2016 er áætlað að verði neikvætt sem nemur 709
m.kr. 

Handbært fé frá rekstri í A og B hluta nemur 1.020 m.kr. á árinu 2013,
fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum eru áætlaðar 766 m.kr. og
afborganir langtímalána 826 m.kr. Handbært fé í samstæðu er áætlað 407 m.kr. í
árslok 2013 og lækkar um 470 m.kr. frá ársbyrjun. Í þriggja ára áætlun nemur
handbært fé frá rekstri í samstæðu á árunum 2014-2016 samtals 3.022 m.kr.
Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum eru áætlaðar 1.272 m.kr. og
afborganir langtímalána 1.771 m.kr. Þá er handbært fé í árslok 2016 462 m.kr. 

Í 64 gr. nýrra sveitarstjórnarlaga er tóku gildi 1. janúar 2012 er kveðið á um
að skuldaviðmið A og B hluta sé ekki hærra en sem nemur 150%. Gefinn hefur
verið 10 ára aðlögunartími til að ná hlutfallinu eða til 2022. Miðað við
útgefna reglugerð er framangreint skuldaviðmið áætlað 187% í árslok 2013 hjá
samstæðunni. Miðað við langtímaáætlun sveitarfélagsins er gert ráð fyrir að það
nái 150% viðmiðunarhlutfallinu innan sex ára og hefur sveitarfélagið verið í
góðum samskiptum við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna
skuldastöðu sinnar. Framlegðarhlutfall (EBIDTA) er 21,1 % í samstæðu og 17,5% í
A-hluta á árinu 2013 og helst stöðugt í langtímaáætlunum sveitarfélagsins. 

Stærstu fjárfestingaverkefni á næstu árum eru framkvæmdir við nýjan leikskóla á
Norðfirði, áframhald framkvæmda við snjóflóðavarnarmannvirki á Norðfirði og
hjúkrunarheimili á Eskifirði. Þá eru fyrirhugaðar framkvæmdir hjá hafnarsjóði
sem m.a. snúa að stækkun hafnaraðstöðu og lengingu togarabryggjunnar í
Neskaupstað ásamt minni framkvæmdum víðsvegar um sveitarfélagið. 

Fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins má finna á heimasíðu þess:
www.fjardabyggd.is/stjornsysla/fjarmal 


Nánari upplýsingar um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar veita:

Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Gunnar Jónsson bæjarritari í síma
470-9000.