|
|||
2010-08-25 17:47:28 CEST 2010-08-25 17:48:28 CEST REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga - Ársreikningur6 mánaða uppgjör 2010Afkoma lánasjóðsins á fyrri hluta ársins 2010 var umfram væntingar og er tekjuafgangur 941 m.kr. á móti 586 m.kr. fyrir sama tímabil fyrra árs. Munur milli ára felst í gengishagnaði vegna erlendra lána sem voru óvarin eftir fall bankanna 2008. Útlán sem fjármögnuð eru með eigin fé eru verðtryggð og þar sem hækkun vísitölu á fyrri hluta árs er lægri en á sama tímabili í fyrra skýrir það lægri vaxtamun nú samanborið við 2009. Vextir af þeim lánum hafa verið óbreyttir frá síðasta hausti 4,25%. Einnig var ávöxtun á lausu fé lægri en á sama tímabili á síðasta ári, en er þó góð miðað við efnahagsástand. Útborguð lán á fyrri hluta ársins 2010 voru 2,5 ma.kr., samanborið við 6,7 ma.kr. á sama tíma árið 2009. Vanskil við útgáfu þessa árshlutareiknings voru 15 m.kr. Á tímabilinu gaf sjóðurinn út skuldabréf að fjárhæð 3,3 ma.kr. á innlendum skuldabréfamarkaði. Eigið fé í lok tímabilsins var 13,9 ma.kr. á móti 11,9 ma.kr. um mitt ár 2009. Vegið eiginfjárhlutfall, svonefnt CAD-hlutfall, var í lok tímabilsins 82% samkvæmt Basel II reglum. Gert er ráð fyrir að hagnaður lánasjóðsins fyrir árið í heild verði svipaður því sem var síðastliðin tvö ár, en það mun aðallega ráðast af hækkun verðlags það sem eftir lifir árs og þróun skammtímavaxta. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 26. ágúst 2010 í starfsstöð sjóðsins, Borgartúni 30, 5 hæð. Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara spurningum. Kynningin hefst kl. 8:30. Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949. |
|||
|