2015-06-08 11:34:33 CEST

2015-06-08 11:35:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbréf hf. - Fyrirtækjafréttir

Frestun viðskipta með hlutdeildarskírteini Landsbréfa


Landsbréf hf. tilkynna hér með að stjórn félagsins tók þá ákvörðun kl. 9.15 í
morgun að fresta viðskiptum með hlutdeildarskírteini í eftirtöldum sjóðum. 

Er þessi ákvörðun tekin í ljósi ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins að stöðva
viðskipti með tiltekna skráða fjármálagerninga.. 

Sjóðirnir sem um ræðir eru:

  -- Landsbréf - Markaðsbréf 
  -- Landsbréf - Eignabréf
  -- Landsbréf - Einkabréf B
  -- Landsbréf - Einkabréf C
  -- Landsbréf - Safnbréf 1
  -- Landsbréf - Sparibréf stutt
  -- Landsbréf - Sparibréf meðallöng
  -- Landsbréf - Sparibréf plús
  -- Landsbréf - Sparibréf verðtryggð 
  -- Landsbréf - Sparibréf óverðtryggð
  -- Landsbréf - LEQ
  -- Landsbréf - Úrvalsbréf



Ekki er að svo komnu máli lokað fyrir viðskipti með:

  -- Landsbréf - Veltubréf II 
  -- Landsbréf - Öndvegisbréf
  -- Landsbréf - Global Equity
  -- Landsbréf - Nordic 40



Gert er ráð fyrir að opnað verði að nýju fyrir viðskipti þá þegar opnað hefur
verið fyrir viðskipti í kauphöll. Nánari upplýsingar veitir Helgi Þór Arason í
síma 410 2500.