|
|||
2015-06-08 13:44:16 CEST 2015-06-08 13:44:44 CEST REGULATED INFORMATION Hafnarfjarðarkaupstaður - FyrirtækjafréttirFundur skuldabréfaeigenda HFJ 14 1Fundur skuldabréfaeigenda HFJ 14 1 Fundur skuldabréfaeigenda skuldabréfaflokks HFJ 14 1 var haldinn þann 5. júní 2015 kl.15:00-15:25. Efni fundar var að tilkynna skuldabréfaeigendum um brot útgefanda á fjárhagslegum skilyrðum skuldabréfaflokksins samanber tilkynningu útgefanda til Kauphallar þann 26.5.2015. Á fundinum voru Helga Kristín Jóhannsdóttir og Magnús Gísli Eyjólfsson fyrir hönd PwC og Anna María Ágústsdóttir fyrir hönd Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Engin fundargögn voru afhent en á fundinum var farið yfir meðfylgjandi kynningu. [HUG#1926915] |
|||
|