2015-10-02 11:27:42 CEST

2015-10-02 11:28:43 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Fyrirtækjafréttir

Arion banki og Íslandbanki gera með sér samning um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum


Arion banki hf., og Íslandsbanki hafa gert með sér samning um viðskiptavakt á
sértryggðum skuldabréfum á Nasdaq OMX Iceland hf. útgefnum af Arion banka. 

Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningurinn
tekur til í því skyni að eðlilegt markaðsverð skapist á skuldabréfunum og
verðmyndum verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. 

Íslandsbanki mun daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin.
Lágmarksfjárhæð að nafnvirði í markflokka skuldabréfa skal vera 80 m. kr. en
lágmarksfjárhæð tilboða í aðra flokka skal vera 20 m. kr.  Fyrir markflokka
gildir að ef útistandandi nafnvirði er minna en 10 ma. kr. skal fjárhæð tilboða
vera 60 m. kr. en 80 m. kr. þegar stærð flokks hefur náð 10 ma. kr. að
nafnvirði. Skuldabréfaflokkarnir ARION CBI 21, ARION CBI 29 og ARION CB 22 eru
markflokkar. 

Hámarksmunur kaup og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á
hverjum tíma sbr. neðangreind töflu. Miða skal við árafjölda til gjalddaga. Á
gildistíma samnings skal hámarksmunur kaup og sölutilboða breytast í samræmi
við tíma sem eftir er til gjalddaga sbr. neðangreinda töflu 



Árafjöldi til lokagjalddaga          Hámarksverðbil        
-----------------------------------------------------------
          0-6 mán            Ekki skilgreint hámarksverðbil
-----------------------------------------------------------
       6 mán - 2 ár                       0,20%            
-----------------------------------------------------------
           2-4 ár                         0,30%            
-----------------------------------------------------------
           4-6 ár                         0,35%            
-----------------------------------------------------------
           6-9 ár                         0,60%            
-----------------------------------------------------------
          9-12 ár                         0,70%            
-----------------------------------------------------------
         12-18 ár                         1,00%            
-----------------------------------------------------------
     18 ár eða lengra                     1,15%            
-----------------------------------------------------------



Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Íslandsbanka er skylt að eiga með
skuldabréfaflokka sem falla undir þennan samning hvern dag sem Íslandsbanki er
skuldbundinn til að setja fram tilboð samkvæmt samningi þessum skal vera
samtals kr. 500 milljónir,- að nafnvirði samanlagt í öllum skuldabréfaflokkum. 

Arion banki mun veita Íslandsbanka aðgang að verðbréfalánum. Hámarkslán til
Íslandsbanki í hverjum flokki sértryggðra skuldabréfa er 320 m.kr. að nafnverði
fyrir markflokka en 80 m.kr. að nafnvirði fyrir aðra flokka. 

Framangreindur samningur er þriðji samhljóða samningur sem Arion banki hefur
gert um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum bankans. Landsbankinn,
Íslandsbanki og MP Straumur eru viðskiptavakar á sértryggðum skuldabréfum Arion
banka. 



Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs
Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.