|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2020-01-20 10:12:45 CET 2020-01-20 10:12:45 CET REGULATED INFORMATION Reginn hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsReginn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 3 keyptu Reginn hf. 7.644.656 eigin hluti að kaupverði 183.296.743 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. janúar 2020. Reginn átti 25.502.153 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 33.146.809 eigin hluti eða sem nemur 1,82% af útgefnum hlutum í félaginu. Reginn hefur keypt samtals 11.216.984 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,61% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 265.460.287 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 4. mars 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|