|
|||
2011-03-03 16:21:23 CET 2011-03-03 16:22:24 CET REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirLandsvirkjun og Íslandsbanki framlengja og stækka veltilán í íslenskum krónumLandsvirkjun og Íslandsbanki skrifuðu í dag, 2. mars, undir samning um að framlengja veltilán að fjárhæð 3 milljarðar króna og jafnframt að gera nýtt veltilán að fjárhæð 2 milljarðar króna. Lánstími veltilánanna er þrjú ár og ber lánið Reibor millibankavexti auk mjög hagstæðs álags. Lánið er svokallað veltilán og getur Landsvirkjun dregið á það eftir þörfum með litlum fyrirvara. Veltiláninu er ætlað að auka enn frekar aðgengi Landsvirkjunar að fyrirvaralítilli fjármögnun í íslenskum krónum og þar með bæta lausafjárstöðu fyrirtækisins sem er afar góð fyrir. Nánari upplýsingar veita: Kristján Gunnarsson, deildarstjóri fjármáladeildar, í síma 515 9028, netfang: kristjan@lv.is og Davíð Ólafur Ingimarsson, yfirmaður lánamála, í síma 515 9233, netfang: davidi@lv.is. |
|||
|