|
|||
2012-10-10 19:15:00 CEST 2012-10-10 19:15:07 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirÚttekt á fjárhagsstöðu Orkuveitu ReykjavíkurÁ aðalfundi Orkuveitu Reykjavíkur 23. júní 2011 var samþykkt að láta fram fram óháða „úttekt á stöðu og rekstri Orkuveitu Reykjavíkur með það fyrir augum að draga fram með skýrum hætti orsakir þeirrar fjárhagslegu stöðu sem fyrirtækið hefur ratað í.“ Þetta var ákveðið í framhaldi af samþykkt borgarstjórnar Reykjavíkur sama efnis 31. mars 2011. Í úttektarnefnd voru skipuð þau Ása Ólafsdóttir hrl., Margrét Pétursdóttir löggiltur endurskoðandi og Ómar H Kristmundsson prófessor við Stjórnmálafræðideild HÍ. Skýrsla þeirra liggur nú fyrir og er að finna á opinberu vefsvæði Reykjavíkurborgar: http://reykjavik.is/portaldata/1/Resources/OR-Uttekt/Uttektarskyrsla_OR_2012.pdf |
|||
|