2017-10-30 16:46:12 CET

2017-10-30 16:46:43 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Skeljungur hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Skeljungur: Árshlutauppgjör - þriðji ársfjórðungur 2017


Hagnaður nam 444 milljónum króna og hélst óbreyttur milli ára.


Helstu niðurstöður þriðja ársfjórðungs 2017
  * Hagnaður á hlut var 0,21 og er óbreyttur frá sama tímabili í fyrra.
  * Framlegð nam 1.965 m.kr. og lækkaði um 2,6% frá þriðja ársfjórðungi 2016.
  * Rekstrarkostnaður lækkaði um 21 m.kr. milli ára eða um 1,8%.
  * EBITDA hagnaður nam 854 m.kr. sem er um 2,4% lækkun frá sama tímabili í
    fyrra.
  * EBITDA framlegð var 43,4% og helst óbreytt milli ára.
  * Hagnaður eftir skatta nam 444 m.kr. samanborið við 445 m.kr. á sama tímabili
    í fyrra.
  * Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.281 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 37,1%.
  * Bókfærð einskiptisgjöld vegna hagræðingar eru um 88 m.kr. á þriðja
    ársfjórðungi.

Helstu niðurstöður fyrstu 9 mánaða ársins 2017
  * Hagnaður á hlut var 0,56 en var 0,48 á sama tímabili í fyrra.
  * EBITDA hagnaður nam 2.357 m.kr. sem er 2,4% aukning frá sama tímabili í
    fyrra.
  * EBITDA framlegð var 42,3% miðað við 40,4% í fyrra.
  * Rekstrarkostnaðarhlutfall lækkaði og var 59,4% samanborið við 61,5% á
    síðasta ári.
  * Hagnaður tímabilsins jókst um 6,1% milli ára og nam 1.172 m.kr.
  * Uppreiknuð arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 20,8% samanborið við
    20,7% yfir sama tímabil árið áður.
  * Meðalgengi dönsku krónunnar var 16,1 íslenskar krónur, sem er 13,0% lækkun
    frá sama tímabili árið áður.

Lykiltölur
 Mkr.                         Q3 2017   Q3 2016  Var%   9m 2017   9m 2016  Var%
-------------------------------------------------------------------------------
 Framlegð                   1.965.053 2.017.048 -2,6% 5.569.986 5.701.398 -2,3%

 EBITDA                       853.645   874.782 -2,4% 2.357.042 2.301.751  2,4%

 EBIT                         662.367   692.290 -4,3% 1.786.811 1.769.814  1,0%

 Hagnaður                     444.193   444.941 -0,2% 1.172.059 1.104.367  6,1%



 EBITDA framlegð                43,4%     43,4%           42,3%     40,4%

 EBIT framlegð                  33,7%     34,3%           32,1%     31,0%

 Launakostn./framlegð           29,6%     28,1%           28,3%     28,7%

 Sölu og                        22,8%     20,7%           23,6%     24,1%
 dreif.kostn./framlegð

 Rekstrarkostnaður/framlegð     58,7%     58,3%           59,4%     61,5%

 Arðsemi eiginfjár                                        20,8%     20,7%





Horfur fyrir árið 2017
Í  afkomuspá félagsins  er gert  ráð fyrir  stöðugu gengi  gjaldmiðla og stöðugu
olíuverði.  Breytingar  á  gengi  íslensku  krónunnar  munu  áfram  hafa áhrif á
rekstrarniðurstöður  félagsins,  sér  í  lagi  gagnvart  dönsku  krónunni, vegna
erlends hluta starfseminnar.

Þann  26. október  sl.  tilkynnti  félagið  um  breytt  skipulag og hagræðingu í
rekstri,  þar sem fram kom að  einskiptiskostnaður vegna aðgerðanna næmi um 110
milljónum  króna  og  að  áætluð  kostnaðarlækkun  næmi um 160 milljónum króna á
ársgrundvelli.  Á þriðja ársfjórðungi féll til  kostnaður vegna þessa að fjárhæð
um  88 milljónir  króna,  en  það  sem  eftir  stendur  mun  falla  til á fjórða
ársfjórðungi.  Þá upplýsti félagið þann 27. október um fyrirhugaðar breytingar á
9 Skeljungsstöðvum   yfir   í   Orkustöðvar.  Áætlað  er  að  fjárfesting  vegna
breytinganna  verði um  100 milljónir króna  og falli  til á  næstu 3-5 mánuðum.
Orkan  mun  bjóða  neytendum  upp  á  lægra  verð  og gert er ráð fyrir að selja
sambærilegan  fjölda lítra á nýjum stöðvunum við mat á áhrifum á félagið. Áætlað
er að heildaráhrif ofangreindra breytinga skili yfir 200 milljónum króna samtals
á ársgrundvelli.

Áður  birt áætlun gerði ráð fyrir að  EBITDA ársins yrði á bilinu 2.550-2.750 og
að  fjárfestingar yrðu á bilinu 750-850 m.kr.  Að teknu tilliti til ofangreinds,
þá  gerir  félagið  ekki  breytingu  á  afkomuspám  fyrir  árið  og  áætlunum um
fjárfestingar ársins.



Árshlutareikningur þriðja ársfjórðungs 2017
Árshlutareikningur Skeljungs hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2017 var samþykktur af
stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 30. október 2017.

Árshlutareikningurinn  hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga
þess og er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS).

Sé  ósamræmi  á  milli  íslenskrar  og  enskrar  útgáfu  reikningsins  gildir sú
íslenska.



Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs:
"Við  erum sátt við  niðurstöðu þriðja ársfjórðungs  og rekstrarniðurstöðuna það
sem  af er ári. Það er afar ánægjulegt að  greina frá því að félagið er að skila
metafkomu  í Færeyjum, þó svo hún sé ekki  að skila sér jafnvel í krónum talið í
ljósi  styrkingar íslensku krónunnar. Hagnaður samstæðunnar  er að aukast og við
höldum  sjó þrátt fyrir breytingar  á markaðinum og töluverðan kostnaðarþrýsting
heilt yfir, sem verður að teljast jákvætt.

Við  stefnum að  því að  halda áfram  á þessari  braut og nýlega voru tilkynntar
breytingar  á skipuriti og starfsemi félagsins. Markmiðið með breytingunum er að
einfalda  reksturinn, samþætta  starfsemi Skeljungs  á Íslandi  og í Færeyjum og
gera  æðstu  stjórnendum  betur  kleift  að  vinna  að  framþróun  samstæðunnar.
Vörumerkjum  félagsins var  fækkað og  verða eldsneytisstöðvar  fyrirtækisins nú
reknar  undir vörumerkjum Orkunnar, þar sem áhersla  verður fyrst og fremst á að
bjóða viðskiptavinum ódýrt bensín á vel staðsettum stöðum víðsvegar um landið."



Kynningarfundur
Opinn  kynningarfundur vegna þriðja árshlutauppgjörs  félagsins verður haldinn á
Nordica  Hilton Reykjavík, fundarsal D, þriðjudaginn 31. október 2017. Fundurinn
hefst  kl. 08:30 en boðið verður upp á  léttar veitingar frá kl. 08:15. Þar munu
stjórnendur félagsins fara yfir uppgjör og horfur.

Allt  efni fundarins verður  gert aðgengilegt fjárfestum  á heimasíðu Skeljungs,
www.skeljungur.is/fjarfestar, sem og á fréttasíðu Nasdaq Iceland.



Nánari   upplýsingar   veitir   Hendrik   Egholm,   forstjóri,   s:   840-3002,
tölvupóstfang: fjarfestar@skeljungur.is.


[]