|
|||
2011-05-16 18:35:02 CEST 2011-05-16 18:36:03 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirMatsfyrirtækið Fitch staðfesti í dag lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands, en breytir horfum á lánshæfismatinu úr neikvæðum í stöðugarMatsfyrirtækið Fitch staðfesti í dag lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands, en breytir horfum á lánshæfismatinu úr neikvæðum í stöðugar Matsfyrirtækið Fitch hefur í dag breytt horfum á langtíma- og skammtímaeinkunnum á lánshæfi Ríkissjóðs Íslands. Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs hjá Fitch eru BB+ í erlendri mynt og BBB+ í innlendri mynt til langs tíma, og eru horfur á einkunnum nú stöðugar. Skammtímaeinkunn í erlendri mynt er B og landseinkunn er BB+. Í tilkynningu frá Fitch kemur fram að ákvörðun fyrirtækisins sé fyrsta jákvæða matsbreytingin frá árinu 2006 og felur í sér endurmat á áhrifum þess að Icesave-samningnum var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu 9 apríl sl. Viðfest er álit Fitch frá í dag: |
|||
|