2010-04-14 18:56:25 CEST

2010-04-14 18:57:25 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eyrir Invest ehf. - Hluthafafundir

Tillaga um breytingu á samþykktum Eyris Invest ehf. verður lögð fram á aðalfundi félagsins þann 21.apríl 2010


Stjórn Eyris Invest ehf. leggur til að núverandi 3., 4. og 5. mgr. 5. gr.
samþykkta félagsins verði felldar niður og að í stað þeirra komi ný málsgrein
er verði 3. mgr. 5. gr. er hljóði svo: 

Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé þess um allt að 201.536.244 hluti
með útgáfu nýrra hluta. Stjórn félagsins er heimilt að ákveða ráðstöfun
áskriftarréttar að hinum nýju hlutum sem og að ákveða gengi og önnur
áskriftarkjör. Hluthafar falla frá forgangsrétti til áskriftar að hinum nýju
hlutum í samræmi við 24. gr. laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög. Stjórn
félagsins getur heimilað einstökum hluthöfum í ákveðnum tilfellum að skrifa sig
fyrir áskrift nýrra hluta, að hluta eða heild. Hinir nýju hlutir skulu vera í
sama flokki og bera sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu. Heimildin gildir
í átján mánuði, að því leyti sem hún hefur ekki verið nýtt fyrir það tímamark.