|
|||
2010-12-02 17:57:51 CET 2010-12-02 17:58:52 CET REGULATED INFORMATION Fjarðabyggð - FyrirtækjafréttirFjárhagsáætlun 2011Bæjarstjórn Fjarðabyggðar Fjárhagsáætlun 2011 Fimmtudaginn 2. desember 2010 var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fjarðabyggðar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana fyrir árið 2011. Seinni umræða bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun 2011 verður þann 16. desember n.k. Í A hluta er Aðalsjóður auk eignasjóða, tækja- og þjónustumiðstöðvar. Í B hluta eru veitustofnanir, hafnarsjóður, félagslegar íbúðir og sorpstöð í eigu Fjarðabyggðar. Rekstrarafgangur bæjarsjóðs (A-hluta) og stofnana (samstæða A og B hluta) fyrir fjármagnsliði er áætlaður 748 millj. kr. króna. Þar af er rekstrarafgangur A hluta 379 millj. kr. Að teknu tilliti til fjármagnsliða verður rekstrarafgangur samstæðunnar 211 millj. kr. og rekstrarafgangur A hluta 13 millj. kr. Eigið fé samstæðunnar er áætlað 322 millj. kr. í árslok 2011 og eiginfjárhlutfall 3%. Í A hluta er eigið fé 24 millj. kr. í árslok 2011 og eiginfjárhlutfall 0,3%. Handbært fé frá rekstri í samstæðu er áætlað 731 millj. kr. og afborganir langtímalána á árinu 2010 verða 602 millj. kr. Þar af er handbært fé frá rekstri í A hluta 306 millj. kr. og afborganir langtímalána 389 millj. kr. Skuldir og skuldbindingar samstæðu, sem hlutfall af heildartekjum, er áætlað 250,9% í árslok 2011 en að teknu tilliti til handbærs fjár er hlutfallið 242,3%. Sveitarfélagið hefur verið í góðum samskiptum við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna skuldastöðu sveitarfélagsins. Á vettvangi samráðsnefndar ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál hefur verið unnið að tillögum að fjármálareglum fyrir sveitarfélögin og í fjárhagsáætlun ársins 2011 hafa þau viðmið verið höfð að leiðarljósi. Samkvæmt fjárhagsáætluninni er framlegðarhlutfall (EBIDTA) 27,1% í samstæðu og 19,9% í A-hluta. Ástæða þessa er að útsvarstekjur á íbúa í Fjarðabyggð eru með því hæsta sem gerist á landinu, atvinnustig hátt, staða fyrirtækja sterk og fjárfestingar í atvinnulífinu enn miklar. Þetta gerir það að verkum að sveitarfélagið getur tekist á við rekstur og skuldir af krafti á komandi árum. Á árinu 2010 var markvisst unnið að hagræðingu og lækkun rekstrargjalda og því verður haldið áfram á árinu 2011. þó með það að markmiði að standa vörð um grunnþjónustu við íbúa, lágmarka þjónustuskerðingu og standa ekki í vegi fyrir frekari uppbyggingu og styrkingu atvinnulífs í sveitarfélaginu. Á árinu 2011 er fjárfesting sveitarfélagsins áætluð 287 millj. kr. Stærstu verkefnin sem blasa við á næsta ári eru bygging nýrrar Hulduhliðar; hjúkrunarheimilis á Eskifirði, snjóflóðavarnarmannvirkja á Norðfirði og ýmsar framkvæmdir hjá hafnarsjóði auk smærri verkefna víðs vegar um sveitarfélagið. Nánari upplýsingar um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar veita Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Björgvin Valdimarsson fjármálastjóri í síma 470-9000. |
|||
|