2009-03-24 20:21:54 CET

2009-03-24 20:23:24 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Fyrirtækjafréttir

Stjórnendur Össurar selja hlutabréf



Forstjóri Össurar hf. og framkvæmdastjórar hafa selt stærstan hluta
hlutabréfa sinna í félaginu, alls 23.441.801 hlut eða 5,6% af
heildarhlutafé félagsins. Stærstur hluti bréfanna var upphaflega
keyptur á hlutabréfamarkaði og fjármagnaður að nokkru leyti með
lánsfé.  Bréfin eru seld til uppgjörs á þeim skuldum. Össur hf.  eða
aðrir hluthafar Össurar hf. hafa aldrei veitt stjórnendum lán eða
ábyrgðir.

Kaupandi hlutabréfanna er danska fjárfestingafyrirtækið William
Demant Invest A/S. William Demant Invest hefur verið stærsti hluthafi
Össurar frá árinu 2005 og eykur við kaupin hlut sinn úr 34,3% af
heildarhlutafé í 39,9%.

Þessar eignabreytingar leiða ekki til skyldu til að gera
yfirtökutilboð í hlutabréf annarra hluthafa, þar sem nýsamþykktar
breytingar á yfirtökureglum laga um verðbréfaviðskipti hafa ekki
formlega tekið gildi.

Engar breytingar eru fyrirhugaðar á rekstri Össurar hf., hvorki á
Íslandi né annarsstaðar, í kjölfar þessara viðskipta.

Jón Sigurðsson forstjóri Össurar hf.: "Við sjáum verulega eftir
þessum hlut okkar í félaginu en verðum að sætta okkur við að hafa
ekki fjárhagslegt bolmagn til að halda hlutabréfunum. Össur hf. er
gott og fjárhagslega sterkt fyrirtæki.  Áherslan hefur alltaf verið
jafnt á vöxt og hagnað, sem nú skilar sér í að félagið er eins vel
undirbúið fjárhagslega og hægt er fyrir þær sviptingar sem nú ríða
yfir."