|
|||
2013-02-26 23:58:37 CET 2013-02-26 23:59:39 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirÓbreytt lánshæfiseinkunn Moody‘sReykjavík, 2013-02-26 23:58 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Matsfyrirtækið Moody‘s hefur gefið út lánshæfiseinkunn fyrir Orkuveitu Reykjavíkur. Einkunnin er óbreytt frá fyrra mati, eða B1 með neikvæðum horfum. Í viðhengdri tilkynningu segir að til þess að horfur verði metnar stöðugar þurfi fyrirtækið að verja sig frekar fyrir ytri sveiflum í álverði, vöxtum eða gengi og sérstaklega er tiltekið að nái eignarsöluáform Orkuveitunnar áætlun, sé það til þess fallið að bæta horfur í rekstrinum. Matið, sem er á ensku, er í viðhengi. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt, með fyrirvara um staðfestingu eigenda, kauptilboð í höfuðstöðvar fyrirtækisins að fjárhæð 5,1 milljarður króna. Sú samþykkt er í ferli hjá eigendum, sbr. tilkynningu til Kauphallar 25. janúar sl. Þá hefur stjórn samþykkt að selja Reykjavíkurborg Perluna á Öskjuhlíð á 950 milljónir króna. Kaup Reykjavíkurborgar voru háð því að samningar tækjust við mennta- og menningarmálaráðuneytið um rekstur náttúruminjasafns í húsnæðinu. Þeim samningum mun ekki vera lokið. |
|||
|