|
|||
2013-12-06 12:45:00 CET 2013-12-06 12:45:01 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 15 0408Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 15 0408 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 15 0408: Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.350 m.kr. að nafnverði. 2 tilboðum var tekið fyrir 650 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,800 (4,64% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 10. desember. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er miðvikudagurinn 11. desember 2013. |
|||
|