2014-09-09 13:48:25 CEST

2014-09-09 13:48:37 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
REG3A fjármögnun - Fyrirtækjafréttir

REG3A fjármögnun : Íslandsbanki hf. annast viðskiptavakt með skuldabréf REG3A fjármögnunar


ALDA sjóðir hf. og Reginn hf. hafa samið við Íslandsbanka um að annast
viðskiptavakt með útgefin skuldabréf REG3A fjármögnunar, REG3A 14 1. Um er að
ræða eignatryggð skuldabréf til fjármögnunar á Reginn atvinnuhúsnæði ehf.
dótturfélagi Regins hf.

Viðskiptavaktin felst í því að Íslandsbanki mun setja fram daglega kaup- og
sölutilboð í bréfin, áður en markaður er opnaður, að lágmarki 20.000.000 króna
að nafnverði.

Íslandsbanki mun endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að því hefur
verið tekið. Tilboðin gilda aðeins innan dags og hámarksmunur kaup- og
sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og má vera 1,5%.

Eigi viðskiptavakt Íslandsbanka viðskipti á einum degi fyrir 100.000.000 kr. að
nafnvirði er honum heimilt að hætta framsetningu tilboða fram á næsta
viðskiptadag.

Viðskiptavaktin gildir frá og með 10. september 2014.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA
sjóðir hf. í síma 510-1090.


[HUG#1854687]