2021-09-24 11:13:07 CEST

2021-09-24 11:13:07 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Sjóvá - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf., sem haldinn var 12. mars 2021, veitti stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 133.410.638 eigin hluti í félaginu, en það jafngildir 10% af útgefnu hlutafé félagsins þegar tekið hefur verið tillit til hlutafjárlækkunar sem samþykkt var á sama aðalfundi. Heimildina skal einungis nýta í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum. Heimildin gildir í 18 mánuði og takmarkast við að eignarhald félagsins og dótturfélaga þess fari ekki umfram 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Félagið á í dag 28.276.044 eigin hluti og munu endurkaupin að hámarki nema 7.042.253 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 2,65% af útgefnu hlutafé félagsins. Þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 250 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 10. mars 2022 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 338.895 hluti eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í ágúst 2021. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Markaðsviðskipti Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/​2005.

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. eiga 28.276.044 hluti, eða sem nemur 2,12% af útgefnu hlutafé áður en endurkaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast.

Nánari upplýsingar veitir:

Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is