2012-05-08 15:07:45 CEST

2012-05-08 15:08:47 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Orkuveitan og Lánasjóður sveitarfélaga skrifa undir lánasamning


Reykjavík, 2012-05-08 15:07 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Í dag var undirritaður
lánasamningur á milli Orkuveitu Reykjavíkur og Lánsjóðs sveitarfélaga að
fjárhæð 6,2 milljónir evra. Lánstíminn er til 2020 og eru vextir á lánstímanum
Euribor-vextir með 0,46% álagi. Lánið er veitt til að endurfjármagna
yfirstandandi fráveituframkvæmdir á Akranesi, í Borgarbyggð og á Kjalarnesi,
sem fjármagnaðar voru með óhagkvæmari hætti. Tilkynnt var um að til stæði að
taka lánið 26.10. sl.