2009-11-23 14:55:11 CET

2009-11-23 14:56:11 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir

- Nauðasamningar Sparisjóðs Mýrasýslu samþykktir


Á atkvæðafundi þann 20. nóvember 2009 voru greidd atkvæði um nauðasamninga
fyrir Sparisjóð Mýrasýslu. Umsjónarmaður nauðasamninga var Garðar Garðarsson
hrl. Stærsti kröfuhafi Sparisjóðs Mýrasýslu, Nýi Kaupþing banki hf. (nú Arion
banki hf.), naut ekki atkvæðisréttar á fundinum, þar sem bankinn er eigandi
alls stofnfjár í sparisjóðnum. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var sú að 90%
kröfuhafa samþykkti nauðasamninginn, sem jafngilti 73% af fjárhæð þeirra krafna
er lýst var. Engin atkvæði voru greidd gegn nauðasamningnum. 
Nauðasamningur sá er samþykktur var byggir á mikilli vinnu er unnin var síðasta
vetur að af hálfu forsvarsmanna Sparisjóðs Mýrasýslu að fjárhagslegri
endurskipulagningu sparisjóðsins, með sameiningu við Nýja Kaupþing banka hf. að
markmiði. Bráðabirgðastjórn Sparisjóðs Mýrasýslu telur hér vera um mjög jákvæða
niðurstöðu að ræða í ljósi þeirra aðstæðna er ríkt hafa á íslenskum
fjármálamarkaði. Er hér í raun um fyrstu fjármálastofnunina að ræða sem lýkur
fjárhagslegu uppgjöri með nauðasamningum í stað slitameðferðar, sem telja
verður að hafi verið mun hagstæðari niðurstaða fyrir kröfuhafa.
Greiðsluhlutfall skv. nauðasamningnum nemur 67,6% almennra krafna. Mun
bráðabirgðastjórn Sparisjóðs Mýrasýslu nú óska staðfestingar héraðsdóms á
nauðasamningnum og öðlast hann að því loknu gildi. 

F.h. bráðabirgðastjórnar SPM
Sigurður R. Arnalds hrl., formaður