|
|||
2012-07-03 17:31:00 CEST 2012-07-03 17:31:04 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026SKIPTIÚTBOÐ Föstudaginn 6. júlí kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi. Boðin verða til sölu óverðtryggð bréf í flokknum RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 10. júlí 2012. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 11. júlí 2012. SKIPTIÚTBOÐ Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026 með sölu á RIKB 12 0824, sem fellur á gjalddaga 24. ágúst nk. Lánamál ríkisins kaupa RIKB 12 0824 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 99,95 (103,689071 með áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 11. júlí 2012. Til skýringar, jafngildir verðið 4,50% í flötum vöxtum. Andvirði bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum. Þeir sem vilja nota RIKB 12 0824 sem greiðslu í útboðinu þurfa að tilkynna Lánamálum ríkisins það eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 10. júlí 2012. Fjárfestar sem eiga bréf í RIKB 12 0824 og hafa áhuga á að endurfjárfesta í öðrum ríkisbréfum eru sérstaklega hvattir til þess að taka þátt í þessu útboði með því að hafa samband við næsta banka. |
|||
|