2011-12-20 09:25:01 CET

2011-12-20 09:26:03 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

Hampiðjan hf. selur dótturfyrirtæki sitt í Namibíu


Hampiðjan hefur selt Ásmundi Björnssyni allan eignarhlut sinn í Hampidjan
Namibia Ltd.  Söluverðið, € 1.030 þús. (ein milljón þrjátíu þúsund evrur) er að
fullu greitt.  Óverulegur munur er á söluverði og bókfærðu verði
eignarhlutsins. 



Jón Guðmann Pétursson, forstjóri Hampiðjunnar:

Hampiðjan hefur frá árinu 1995 rekið dótturfélag í Namibíu.  Þó svo rekstur
félagsins hafi verið farsæll hefur félagið ekki náð þeim umsvifum sem réttlætti
áframhaldandi rekstur þess af hálfu Hampiðjunnar.  Á síðasta ári voru
sölutekjur félagsins ríflega ein milljón evrur og lítilsháttar tap var á
rekstrinum.   Við erum afar ánægð með kaupandann, en Ásmundur Björnsson hefur
rekið félagið frá stofnun þess, en áður starfaði hann hjá Hampiðjunni.