2013-04-05 17:47:21 CEST

2013-04-05 17:48:22 CEST


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic
HB Grandi hf. - Notice to convene ext. general meeting (is)

HB Grandi hf – Dagskrá aðalfundar 19. apríl 2013


Dagskrá og tillögur fyrir  fyrir aðalfund HB Granda hf. 19. apríl 2013

Dagskrá


  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina síðastliðið ár.
  2. Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.
  3. Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.
  4. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
  5. Kosning stjórnar félagsins.
  6. Kosning endurskoðenda skv. 21. gr.
  7. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
  8. Önnur mál, löglega upp borin.



Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 16:30


Tillögur fyrir aðalfund HB Granda hf. 19. apríl 2013:


Tillaga um greiðslu arðs

Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 19. apríl 2013 samþykkir að greidd verði 1,00
kr. á hlut í arð vegna ársins 2012, alls að fjárhæð 1.698.033.723 kr. Arðurinn
verður greiddur 30. apríl 2013. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir
bréfunum er 19. apríl 2013 og arðleysisdagur því 22. apríl 2013. 

Arðsréttindadagur er 24. apríl 2013 (arður greiðist þeim sem skráðir eru í
hlutaskrá að loknu uppgjöri verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 12:00 þann
24. apríl 2013) 


Tillaga um þóknun til stjórnarmanna

Þóknun fyrir liðið ár

Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 1.800.000, formaður fái
tvöfaldan hlut og varamaður hálfan hlut. 


Þóknun fyrir næsta ár

Þóknun næsta árs til stjórnarmanna verði 150.000 kr. á mánuði, formaður fái
tvöfaldan hlut og varamaður hálfan hlut. 

Kosning stjórnar

Framboðsfrestur rennur út fimm dögum fyrir aðalfundar.  Upplýsingar um
frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveim dögum fyrir
aðalfund. 

Kosning endurskoðanda

Endurskoðunarfélag: KPMG ehf.


Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum

Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu.
Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki
yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við
síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en samningur er gerður.