|
|||
2011-12-20 09:25:01 CET 2011-12-20 09:26:03 CET REGULATED INFORMATION Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)Hampiðjan hf. selur dótturfyrirtæki sitt í NamibíuHampiðjan hefur selt Ásmundi Björnssyni allan eignarhlut sinn í Hampidjan Namibia Ltd. Söluverðið, € 1.030 þús. (ein milljón þrjátíu þúsund evrur) er að fullu greitt. Óverulegur munur er á söluverði og bókfærðu verði eignarhlutsins. Jón Guðmann Pétursson, forstjóri Hampiðjunnar: Hampiðjan hefur frá árinu 1995 rekið dótturfélag í Namibíu. Þó svo rekstur félagsins hafi verið farsæll hefur félagið ekki náð þeim umsvifum sem réttlætti áframhaldandi rekstur þess af hálfu Hampiðjunnar. Á síðasta ári voru sölutekjur félagsins ríflega ein milljón evrur og lítilsháttar tap var á rekstrinum. Við erum afar ánægð með kaupandann, en Ásmundur Björnsson hefur rekið félagið frá stofnun þess, en áður starfaði hann hjá Hampiðjunni. |
|||
|