|
|||
2022-08-15 11:54:07 CEST 2022-08-15 11:54:07 CEST REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLánasjóður sveitarfélaga - Útboð LSS 39 0303Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokknum LSS 39 0303 miðvikudaginn 17. ágúst 2022. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum allt að fjárhæð 2.000 milljónir króna að markaðsvirði. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að fullu eða hluta, eða hafna þeim öllum. Lánasjóðurinn hefur boðið aðalmiðlurum sjóðsins Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka og Landsbankanum að taka þátt í útboðinu. Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu: LSS 39 0303 Útboðsfjárhæð: 2.000.000.000 (tvöþúsund milljónir króna). Uppgjör sölu: Mánudaginn 22. ágúst 2022. Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 17. ágúst 2022 til Lánasjóðs sveitarfélaga á netfangið utbod@lanasjodur.is Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 17:00 á útboðsdegi. |
|||
|