|
|||
2008-12-10 15:47:26 CET 2008-12-10 15:48:26 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðsÚtboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 10 1210 með hollensku sölufyrirkomulagi fór fram hjá Seðlabanka Íslands kl. 14:00 í dag. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: Alls bárust 50 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 18.976 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 11.476 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,17 (14,25% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, eða 1.148 m.kr., á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 á uppgjörsdegi útboðsins. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er einum degi eftir viðskiptadag (T+1). |
|||
|