|
|||
2009-02-16 12:01:17 CET 2009-02-16 12:02:18 CET REGULATED INFORMATION Nýsir hf. - Fyrirtækjafréttir- Fjárhagsleg endurskipulagning Nýsis hf.Helstu lánardrottnar Nýsis hf. hafa undanfarna mánuði unnið sameiginlega í óformlegu greiðslustöðvunarferli að því að tryggja verðmæti í félaginu í samræmi við vinnubrögð hinnar svokölluðu Lundúnarleiðar um úrlausn vanda fyrirtækja í fjárhagslegum erfiðleikum. Haft var til grundvallar að hin óformlega greiðslustöðvun skyldi leiða til þess að kröfuhafar væru betur staddir að afloknu þessu ferli en ef til gjaldþrots hefði komið. Að mati helstu lánardrottna félagsins, sem og óveðtryggra kröfuhafa, er reynsla síðustu mánaða jákvæð og ítrekar mikilvægi samstarfs kröfuhafa við úrlausn erfiðra útlánamála. Í kjölfar þessa óformlega greiðslustöðvunarferlis hefur viðræðum milli eigenda Nýsis hf. og helstu lánardrottna félagsins, NBI hf., Landsbanka Íslands hf., Nýja Glitnis Banka hf., Nýja Kaupþings Banka hf., SPRON, Byr sparisjóðs ásamt fleirum nú lokið með yfirtöku lánardrottna á öllu hlutafé í Nýsi hf. Samhliða formlegri aðkomu aðila að félaginu munu lánardrottnar félagsins nú vinna að því að ljúka endurskipulagningu þess með sölu eða lokun óarðbærra dótturfélaga Nýsis hf. í huga. Markmið endurskipulagningarinnar er að tryggja rekstrarhæfi Nýsis hf. og valdra dótturfélaga en það er ljóst að yfirstandandi efnahagsþrengingar ásamt gengisfalli íslensku krónunnar og hárri verðbólgu hefur rýrt eigið fé Nýsis hf. og dótturfélaga til mikilla muna. Í þessu sambandi er rétt að geta þess að fyrri eigendur Nýsis hf. hafa nú þegar gengið frá sölu á hlut félagsins í Meritum ehf. (móðurfélagi Miða.is og Billetlugen APS) til Straums Burðaráss Fjárfestingabanka hf. og óskað eftir því að Nýsir fasteignir hf. verði tekið til gjaldþrotaskipta enda hefur skuldastaða félagsins versnað umtalsvert síðastliðið ár og vanskil félagsins og dótturfélaga þess gagnvart NBI hf. (áður Landsbanka Íslands hf.) meiri en við var ráðið. Ennfremur standa yfir viðræður um sölu á hlutum Nýsis hf. í þróunarverkefnum félagsins við hlið Tónlistarhússins á austurbakka Reykjavíkurhafnar og yfirtöku Landsbanka Íslands hf. á dótturfélögum Nýsis hf. í Bretlandi. Með formlegri yfirtöku helstu lánardrottna Nýsis hf. á félaginu hefst nú næsta stig í endurskipulagningu þess. Vonir standa til að niðurstaða um framtíðareignarhald félagsins og dótturfélaga muni skýrast á næstu 2-3 mánuðum. Fyrrverandi eigendur Nýsis hf., þeir Sigfús Jónsson og Stefán Þórarinsson, hafa ennfremur sagt skilið við félagið en framkvæmdastjóri félagsins frá og með 16. febrúar verður Haraldur L. Haraldsson. Nánari upplýsingar veitir Haraldur L. Haraldsson, framkvæmdastjóri Nýsis hf. Haraldur Haraldsson: hlh@nysir.is |
|||
|